Bústaðaleiga.is / IcelandVacation.is er að leita eftir sumarhúsaeigendum til samstarfs. Þeim sem áhuga hafa á að leigja bústaði sína einhverja hluta ársins.
Bústaðaleiga.is mun bjóða bæði leigjendum og sumahúsaeigendum ýmsa
þjónustu og mun leggja mikla áherslu á markaðsetningu á sumarhúsunum á netinu.
Stefnan er að nýta sem best alla þá þjónustu sem fyrir er. Fá t.d. heimafólk af hverju svæði fyrir sig til liðs við fyrirtækið varðandi þrif, viðhald og eftirlit með bústöðunum. Einnig munum við markaðsetja sérkenni svæðanna og þá ferðamannaþjónustu sem er boðið upp á í nágrenni sumarhúsanna.
Við teljum að þjónusta Bústaðaleiga.is nái jafnt til einstaklinga sem vilja leigja bústaðinn sinn allt árið eða hluta úr ári sem og ferðaþjónustufyrirtækja með 2 til 10 bústaði á sínum snærum því okkar þjónusta styrkir markaðssetningu leigumálanna og þannig nýtingu fjármuna og þeirra þjónustuþátta sem fyrir eru.
Verðskrá:
- Árgjald - kr. 12.450.- með VSK
- Skráningargjald - kr. 24.900.- með VSK. Innifalið er úttekt á bústaðnum, verðflokkun og myndataka
ATH fyrir þá bústaðaeigendur sem skrá sig fyrir 1. mars 2009 þá er 2009 árgjaldið frítt.
English
Íslenska